Forsíðan
Fréttir og næsti leikur efst. Fyrir neðan koma dæmi úr efnis vefsins og leiða notanda áfram: leikir, leikmenn, myndir og myndbönd úr sögu félagsins, valin af handahófi, svo forsíðan er alltaf lifandi.
zebra sport
Zebra sport kerfið heldur utan um hvern einasta leik, leikmann, þjálfara, mynd og myndband í sögu félagsins og setur upplýsingarnar fram á lifandi og aðgengilegan hátt, jafnt í síma sem og á stórum skjá.
Kerfið er sveigjanlegt og lagað að hverju félagi fyrir sig. Það getur staðið við hlið núverandi vefs sem sögu- og tölfræðivefur, eða verið aðalvefur félagsins með fréttum, starfsmönnum, skráningum, æfingatöflum og öllu tilheyrandi.



Fréttir og næsti leikur efst. Fyrir neðan koma dæmi úr efnis vefsins og leiða notanda áfram: leikir, leikmenn, myndir og myndbönd úr sögu félagsins, valin af handahófi, svo forsíðan er alltaf lifandi.
Allir sem hafa spilað fyrir félagið, ár fyrir ár. Síað er eftir mótum, raðað eftir leikjum eða mörkum og flakkað á milli ára. Þaðan er hægt að hoppa yfir í leiki, myndir og myndbönd hvers árs.
Hver leikmaður fær sína síðu: leikir og mörk eftir mótum og árum, landsleikir, myndir og myndbönd.
Allir leikir félagsins, ár fyrir ár. Síað er eftir mótum, samanlagður árangur birtist efst og hægt er að stökkva á milli ára.
Hver leikur hefur sína síðu með úrslitum, móti, umferð og velli, og þar safnast saman leikskýrslur, umfjöllun, myndir og myndbönd frá leiknum.
Ómetanlegar heimildir.
Hvert einasta félag sem liðið hefur mætt. Smellt er á félag, allir leikirnir gegn því birtast og samanlagður árangur: leikir, sigrar, jafntefli og töp. Síað er eftir árum, mótum og heima- eða útileikjum.
Allir þjálfarar félagsins og árangur þeirra. Síað er eftir keppnum og raðað eftir tímaröð, leikjafjölda eða sigurhlutfalli. Á síðu hvers þjálfara eru helstu tölur, tímabil, mót og allir leikirnir.
Allir Evrópuleikir félagsins á einni síðu, flokkaðir eftir keppnum. Smellt er á Meistaradeild, Evrópudeild eða Sambandsdeild og leikirnir og samanlagður árangur breytast með.
Ótakmarkaður fjöldi mynda, raðað eftir árum og tengdar leikjum og leikmönnum.
Á eldri leikjum snýst merki félagsins yfir í merkið sem notað var á þeim tíma, eins og gamla UBK-merkið á leikjum Breiðabliks fyrir 1995.
Leikir, sigrar, jafntefli og töp efst á leikjasíðunum birtast á skemmtilegan hátt í hvert skipti sem leit er breytt.
Auðvelt er að setja gögn inn í gegnum vefumsjónarkerfið. Zebra aðstoðar við að koma helstu upplýsingum inn. Allt eftir því hvernig félagið vill hafa það.
Já. Forsíðan getur haldið utan um fréttir, næsta leik og leikmannahópinn, og sagan og tölfræðin fylgja með. Vefurinn getur líka staðið við hlið núverandi vefs sem sögu- og tölfræðivefur.
Já það eru engin takmörk á fjölda deilda eða liða.
Við metum hvert tilfelli fyrir sig. Það fer eftir flækjustigi, fjölda deilda, hvort vefurinn sé einnig aðalvefur félagsins o.s.frv.
Við fögnum góðum hugmyndum og þar sem hver vefur er sérsniðinn þá eru engin takmörk á því hverju hægt er að bæta við.